Hvernig nálgast skal sannleik hinna trúuðu

Þetta bull tónar vel við hvernig trúfólk almennt nálgast sannleikann um guði sína og yfirnáttúru.

1. Ákveða skal hvað maður vilji að sé satt

2. Næst skal finna gögn sem gætu stutt 1. lið -hvað sem er gengur

3. Lítið skal framhjá stórkostlegri vöntun á sönnunargögnum og lýsa því yfir að 1. liður sé sannur

4. Að síðustu er það gert óvinsælt og ljótt að efast um gildi liða 1-3

Benedikt XVI páfi kann þetta.


mbl.is Leifar Páls postula fundnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Ingi Guðjónsson

Blessaður vinur.

 Hvað er málið hjá þér. Hefur þú í  raun kynnst Kristinni trú eða ertu bara eins og margir aðrir góðir menn að kasta steinum úr fílabeinsturninum. Við höfum ekki marga guði við höfum einn Guð. Hann er góður og hann elskar þig. 

Hvernig væri að sleppa alhæfingum og kynna sér mál í alvöru

 kv Stefán

Stefán Ingi Guðjónsson, 29.6.2009 kl. 11:30

2 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Sæll Stefán Ingi

Ekki svona æstur vinur. Auðvitað er ég búinn að kynnast kristinni trú (annarra), hvernig er annað hægt.

Ég held að þetta hér að ofan sé einfaldlega rétt, en viljir þú meina að svo sé ekki er ég meira en tilbúinn að lesa tilsvör þín þar um.

Miðað við hversu ofsalega ólík lýsing fólks sem kallar sig kristið er fólks á milli, vil ég auk þess meina að það sé hæpin fullyrðin hjá þér að þið hafið bara einn guð, því þið hafið í raun marga. Guð sumra er ljúflingur, annarra refsiguð, enn annarra óljós tilfinning o.s.frv.

En það gleður mig vitaskuld að hann sé til, sé góður og að hann elski mig.

Takk fyrir það.

mbk,

Kristinn Theódórsson, 29.6.2009 kl. 11:40

3 identicon

Þetta er mjög góð lýsing á aðferðum trúaðra manna. Hvað hefur maður heyrt þá oft segja að kolefnisaldursgreining sé bullshit þegar menn finna steingerfinga sem eru eldri en alheimurinn samkvæmt þeirra trú. En svo þegar niðustaðan hentar þeim þá taka þeir hana góða og gilda.

 Fyrir utan það þá sé ég ekki að þetta ætti að sanna neitt, var páll postuli eini maðurinn sem kom nálægt vatikaninu í 200 ár? Ég held ekki.

Óli (IP-tala skráð) 29.6.2009 kl. 14:58

4 identicon

Eitt snilldar quote sem lýsir vel ást guðs á þér.

"Religion has convinced people that there’s an invisible man…living in the sky, who watches everything you do every minute of every day. And the invisible man has a list of ten specific things he doesn’t want you to do. And if you do any of these things, he will send you to a special place, of burning and fire and smoke and torture and anguish for you to live forever, and suffer and burn and scream until the end of time. But he loves you. He loves you and he needs money."

George Carlin.

Óli (IP-tala skráð) 29.6.2009 kl. 15:04

5 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Sæll Óli

Takk fyrir innleggin.

Já, Carlin var ekki slæmur.

Annað:

Ætli Guð viti hvað Íslendingar eru að borga kirkjunni á ári í leigu fyrir afnot af jörðum hennar? Hann hlýtur að vera stoltur af þessu öllu saman hjá Þjóðkirkjunni. "Góður bissness strákar!"

mbk,

Kristinn Theódórsson, 29.6.2009 kl. 15:13

6 identicon

Ég hélt einmitt að guð elskaði mann ekki nema EF maður trúði, en ef ekki væri maður basically screwed. En ef hann gerir það either way þá hljótum við guðleysingjarnir að vera bara í helvíti góðum málum.

Siggeir (IP-tala skráð) 29.6.2009 kl. 15:32

7 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Það fer dálítið eftir því hvern þú spyrð, Siggeir.

Guð elskar okkur víst öll mjög heitt, en ætlar samt að refsa okkur mjög grimmilega ef við föttum ekki hvað það er augljóst að hann sé til og hann beri að leggja allt okkar traust á.

Mofa Guð er t.d. að fara að bjarga Aðventistum en lætur alla aðra deyja, verða að engu.

Guð JVJ er hinsvegar að fara að brenna syndara í helvíti.

Guð illskeyttari krisslinga er hinsvegar að fara að refsa okkur dag frá degi þangað til við tökum trú, en kjassa okkur þeim mun meira eftir jarðlífið ef við gerum það.

Allir þessir guðir eru þó sami guðinn, og hann elskar mig.

Kristinn Theódórsson, 29.6.2009 kl. 15:43

8 identicon

Já þetta er skemmtilegt allt saman. Eitt af því sem ég velti oft fyrir mér er það að á Íslandi var mér alltaf kent að maður átti að trúa á Guð. Kristin trú væri það eina rétta. Oll önnur trú væri rong. Síðan kemst maður smá saman að því að svona er þetta sjálfsagt allstaðar og í ollum trúarbrögðum. Maður spyr sig, hvaða vissu hef ég fyrir því að Kristnin sé hin eina rétta. Hefði maður fæðst langt austur í Asíu að þá hefði manni verið kennt að Búddismi væri það eina rétta. Ef maður hefði fæðst í miðausturlöndum að þá sjálfsagt væri manni sagt að Múslimsk trú væri það eina rétta og manni væri BANNAÐ að trúa á eitthvað annað (það er ef maður vill halda lífi þar) síðan eru hin ýmsu önnur trúarbrögð í hinum stóra heimi og öll sjálfsagt þau einu réttu. Svo þarna sér maður (nánast augljóst) hversu sterk rök eru fyrir því að trúin okkar er sú eina rétta.  

Jæja þá að fréttinni. Það virðist vera ansi auðvelt fyrir Kirkjunar menn að sannfærast um að þetta sé hinn eini sanni Páll postuli og það bara á því að maðurinn í kistuni hafi verið uppi á réttum tíma. Maður mundi nú telja "nokkuð" líklegt að einhverjir aðrir þarna hafi sennilega getað gefið upp andan á þessu tímabili (miðað við fréttina að þá er talið að hann hafi verið uppi á fyrstu eða annarri öld eftir Krist, það gefur möguleikan á allt að 200 ára tímabil). Ég mundi nú telja það líklegt að ef þarna hafi verið fleyra fólk, sem telja má líklegt þar sem þarna var þessi kirkja og eins hefur þurft einhverja til að koma hounum í gröfina. Það hefur engin kistalgt sig sjálfur hingað til, eða allavega ekki svo ég viti til. En kanski ég sé svona ófróður um þessa hluti. Miðað við að þarna hafi þá verið eitthvað annað fólk að  þá held ég að séu meiri en smá líkur á að einhverjir aðrir hafi nú getað gefið upp andan á 200 ára tímabili. 

Annars veit maður ekki hvernig greftrunum hefur verið hagað á þessum tíma. Maðurinn var í gröf undir altari í kirkjuni og þá má telja að það hafi ekki verið svona allmennur grafreitur (ég held að alltari sé ekki svo stórt) og þá frekar líkúr á að um einhvern sérstakan einstakling hafi verið að ræða. Síðan geta menn kanski rifist um það hvort einhvarjir aðrir geti hafa verið eitthvað sérstakir eða hvað á þessum stað og þessum tíma.

Jæja annars skemmtilegt. Og auðvitað gott að Guð elskar þig

Kjarri.

Kjarri (IP-tala skráð) 30.6.2009 kl. 02:49

9 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Sæll Kjarri, takk fyrir innleggið

Já, það er hæpið að fullyrða að guð þjóðarinnar sé sá eini rétti, enda eitt af mörgu sem snýr fólki frá kirkjunni.

Það væri gaman að finna Pál postula og geta bent á einhverja ein gröf, en alveg eins og með svo margt hjá kirkjunni, þá á fólk að gleypa við þessu hráu og hugsa ekkert, því það hentar ekki kirkjunni. Ef þeir ættu almennileg gögn um að þetta sé Páll postuli myndu þeir koma með þau, því kirkjan þarf einmitt á auknum trúverðugleika að halda. En það er aldeilis ekki verið að sigla á þau mið með þessum vinsældarveiðum.

mbk,

Kristinn Theódórsson, 30.6.2009 kl. 10:20

10 identicon

Annars er ég ekki svo á móti trúarbrögðum. En mér fynst hins vegar að þau ættu að reina að fynna hvað sameinar þau en ekki í þessari endalausri baráttu sín á milli. Kanski undir niðri er baráttan meira um völd (og peninga) gæti ég helst trúað. Það er reyndar eitt atriði í þessu öllu saman. Það er allur þessi íburður hjá kirkjuni (og reindar flestum trúarbrögðum). Allur þessi íbúrður mundi hæfa sér vel í einhverjum útrásarbönkunum (sem eru reindar allir fallnir) en á ekki við fynst mér í "hinum mikla sanleika".

Jæja nóg í bili.

Kjarri. 

Kjarri (IP-tala skráð) 30.6.2009 kl. 13:50

11 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Trúarbrögð geta ekki unnið saman Kjarri, þá yrðu guðirnir reiðir, þeir eru nefnilega allir mjög abbó þessir guðir.

Mér finnst trúarbrögð afskræma hugtakið þekking. Fólk þykist vita allskyns hluti og trúir þeim heitt. Þegar verst lætur koma síðan sköpunarsinnar eins og Mofi og snúa öllu á hvolf og vilja helst fá að klippa niður vísindin, raunverulegu þekinguna, til að rúma einhverja þjóðsögu um fólkið í eyðimörkinni og hefnigjarna guðinn þeirra.

Það er ekki hægt að ræða málin og taka skynsamlega afstöðu til smokkanotkunar í Afríku og S-Ameríku af því að Kaþólska kirkjan er svo valdamikil á þeim slóðum. Þetta er stórfurðulegt ástand.

Ég er nokkuð viss um að við getum losað okkur við þessa hjátrú og myrkfælni.

mbk,

Kristinn Theódórsson, 30.6.2009 kl. 15:39

12 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Þetta er reyndar góður punktur hjá Kjarra með íburðinn. Lítum á meint orð Jesú um fátækt - hann gengur svo langt að segja lærisveinunum hvað þeir mega taka með sér í ferðir:

7Og hann kallaði þá tólf til sín, tók að senda þá út, tvo og tvo, og gaf þeim vald yfir óhreinum öndum. 8Hann bauð þeim að taka ekkert til ferðarinnar annað en staf, ekki brauð, mal né peninga í belti. 9Þeir skyldu hafa skó á fótum, en ekki tvo kyrtla. (Mk 6:7-9)

Hvernig fólk getur séð samræmi milli þessa og þessa er mér með öllu óskiljanlegt.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 1.7.2009 kl. 08:41

13 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Það er náttúrulega hafsjór á milli þess sem segir í þessu rii og því sem menn vilja meina að segi i því ;)

George Bernard Shaw - "No man ever believes that the Bible means what it says: He is always convinced that it says what he means."

Kristinn Theódórsson, 1.7.2009 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband